2 1/2 árs fangelsi fyrir grófa og ruddafengna nauðgun

Tuttugu og átta ára gamall maður, Stefán H. Ófeigsson, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga tæplega tvítugri stúlku í nóvember í fyrra. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að nauðgunin hafi verið sérlega ruddafengin og gróf. Rannsakað var hvort stúlkunni hefði verið byrlað ólyfjan áður en hann réðst á hana en rannsókn á blóði hennar staðfesti ekki þann grun.

Lyfið Rohipnol sem nauðgarar hafa notað gegn fórnarlömbum sínum skilst hratt úr líkamanum og því getur verið erfitt að finna líkamleg sönnunargögn fyrir notkun þess. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins kærði önnur stúlka manninn fyrir nauðgun en það mál var fellt niður.

Neitaði sök um samneyti

Nauðgunin átti sér stað í Reykjavík hinn 27. nóvember í fyrra. Fram kemur í dómnum að minni stúlkunnar var gloppótt en hún mundi þó eftir árásinni og gat borið vitni um hana. Fyrir dómi neitaði maðurinn hins vegar alfarið að hafa átt kynferðislegt samneyti við stúlkuna. Maðurinn var ákærður fyrir nauðgun og fleiri kynferðisbrot. Í niðurstöðu dómsins segir að þrátt fyrir að maðurinn hafi skýrlega gefið til kynna að hann meiddi hana og að kynferðislegt athæfi hans væri henni á móti skapi hafi hann ekki hikað við að beita hana ofbeldi. Auk refsingar var hann dæmdur til að greiða stúlkunni 900.000 krónur í miskabætur.

Ingveldur Einarsdóttir, Páll Þorsteinsson og Símon Sigvaldason kváðu upp dóminn. Sigríður J. Friðjónsdóttir sótti f.h. ríkissaksóknara og Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl. var til varnar. Réttargæslumaður var Ása Ólafsdóttir hdl.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert