Utanríkisráðherra í heimsókn í Noregi

Geir H. Haarde og Jonas Gahr Støre í Ósló í …
Geir H. Haarde og Jonas Gahr Støre í Ósló í dag.

Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, og eiginkona hans, Inga Jóna Þórðardóttir, eru í tveggja daga opinberri heimsókn í Noregi, í boði Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs. Geir gekk m.a. í morgun á fund Haralds Noregskonungs í höll konungs í Osló.

Þá átti Geir hádegisverðarfund með varnarmálaráðherra Noregs, Anne-Grete Ström-Erichsen, þar sem rædd voru öryggis- og varnarmál, m.a. þátttaka ríkjanna og samstarf í friðargæslu, norrænt samstarf á sviði varnarmála o.fl.

Síðdegis átti ráðherra fund með Jonas Gahr Støre þar sem þeir ræddu samskipti landanna á breiðum grundvelli, meðal annars fiskveiðimál og svæðasamstarf. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu var farið yfir stöðu mála á Evrópska efnahagssvæðinu og voru ráðherrarnir sammála um að rekstur EES-samningsins gengi afar vel.

1 Þá ræddu ráðherrarnir framvinda mála í Evrópusambandinu og fyrirhugaða stækkun sambandsins. Rætt var um málefni Atlantshafsbandalagsins og varnar- og öryggismál almennt. Ennfremur var rætt um framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og reifuð þau mál, sem efst eru á baugi á alþjóðavettvangi um þessar mundir.

Geir átti einnig fund með Torbjørn Jagland, forseta Stórþingsins, og utanríkismálanefnd þingsins. Í kvöld sitja ráðherrahjónin kvöldverðarboð utanríkisráðherra Noregs, þeim til heiðurs.

Á morgun verða utanríkisráðherrar beggja landanna viðstaddir stofnun Norsk-íslensks viðskiptaráðs í bústað sendiherra Íslands í Osló. Að því loknu halda ráðherrahjónin til Stavanger þar sem þau munu m.a. heimsækja herstjórnarmiðstöð Atlantshafsbandalagsins. Þá heldur Geir erindi um stöðu Íslands í hnattvæddum heimi í hátíðarsal Stavangerháskóla og heimsækir höfuðstöðvar Statoil í Stavanger. Heimsókninni lýkur annað kvöld með kvöldverði bæjarstjórnar Stavanger utanríkisráðherrahjónunum til heiðurs. Meðfylgjandi eru tvær myndir frá heimsókninni:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert