Jón Ásgeir segir saksóknara ekki skilja eðli viðskipta með Vöruveltuna

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group, hefur sent frá sér skýringar vegna fréttatilkynningar, sem Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, sendi frá sér í dag um ákærur sem gefnar voru út í gær. Gagnrýnir Jón Ásgeir saksóknara harðlega og segir hann m.a. ekki skilja eðli tiltekinna viðskipta og hafa brugðist rannsóknarskyldu sinni.

Yfirlýsing Jóns Ásgeirs er eftirfarandi:

    Forstjóri Baugs Group hf., óskar eftir því að koma eftirfarandi skýringum á framfæri vegna fréttatilkynningar sem sérstakur saksóknari sendi frá sér fyrr í dag. Meðfylgjandi eru skýringar forstjórans við hvern kafla ákærunnar sem beinist gegn honum og fyrrverandi forstjóra félagsins, Tryggva Jónssyni.

    I.
    Í fyrsta lagi er forstjóri Baugs hf. ákærður fyrir fjársvik en til vara umboðssvik er hann hlutaðist til um að Baugur hf. keypti Vöruveltuna hf. sem rak verslanir undir nafninu 10-11, í maí 1999 án þess að stjórn Baugs hf. væri kunnugt um að hann hafði keypt fyrirtækið sjálfur fyrir umtalsvert lægri upphæð rúmum sjö mánuðum fyrr og væri enn meðal eigenda þess ásamt einkahlutafélagi sem hann hafði umráð yfir. Á því er byggt af hálfu ákæruvaldsins að með þessum blekkingum hafi ákærði og félög honum tengd auðgast á kostnað almenningshlutafélagsins Baugs.

    Skýring:
    Við lestur á þeim ákæruliðum, sem snúa að viðskiptum með hlutabréf í 10-11, virðist ákæruvaldið rugla óskyldum viðskiptum saman. Lýsing ákæruvaldsins á viðskiptum með hlutabréf í 10-11, á sér enga stoð í raunveruleikanum. Staðreyndin er sú að Baugur Group hf. hagnaðist verulega á kaupunum á 10-11 og var kaupverð félagsins hið sama og stjórn þess samþykkti að greiða fyrir félagið. Það er misskilningur saksóknarans að til hafi staðið að fasteignir tilheyrðu rekstri 10-11, þegar Baugur hf. keypti félagið. Þessi ákæruliður er efnislega rangur. Getgátur um ímyndaðan hagnað Gaums og tengdra aðila eru óviðeigandi í ákæru. Fyrir þann sem til þekkir er augljóst er að sérstakur saksóknari hefur ekki skilið eðli þessara viðskipta.

    II.
    Þá eru forstjóri og fyrrum aðstoðarforstjóri Baugs hf. ákærðir í átta liðum fyrir brot gegn hlutafélagalögum vegna ólögmætra lánveitinga, einkum til félaga í eigu eða umráðum forstjórans á árunum 1999-2001 samtals að fjárhæð rúmlega 400 milljónir króna.

    Skýring:
    Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm 15. mars sl. Í forsendum dómsins er m.a. fjallað um hvernig skýra beri 104. gr. hlutafélagalaga. Augljóst er að samkvæmt skýringum Héraðsdóms Reykjavíkur er þessi málatilbúnaður ónýtur. Það er með miklum ólíkindum að ákæruvaldið geri aðra tilraun til að sækja fram með ákæru um meintar ólögmætar lánveitingar á sama vettvangi og byggir á túlkunum sem áður hefur verið hafnað. Ekkert tjón varð af þessum meintu lánveitingum og ekki er vitað til þess að hluthafar félagsins, stjórnarmenn eða endurskoðendur hafi gert athugasemdir.

    III.
    Forstjóri Baugs hf. er ákærður í sjö liðum fyrir meiri háttar bókhaldsbrot og brot gegn hlutafélagalögum með því að hafa rangfært bókhalds Baugs hf. á árunum 2000 og 2001 með tilhæfulausum tekjufærslum, sem höfðu áhrif á afkomutölur félagsins eins og þær birtust í ársreikningum og árshlutareikningum og með því að láta senda tilkynningar um afkomu félagsins, sem m.a. byggðust á þessum röngu færslum, til Verðbréfaþings Íslands. Þetta var m.a. gert í þeim tilgangi að skapa rangar hugmyndir um hag hlutafélags og hafa áhrif á sölu eða söluverð hluta í félaginu.

    Fyrrum aðstoðarforstjóri Baugs hf. er ákærður í sex liðum fyrir meiri háttar bókhaldsbrot með því að hafa rangfært bókhald félagsins. Framkvæmastjóri Nordica Inc. er ákærður fyrir þátt hans í einu þessara tilvika sem fólst í útgáfu tilhæfulauss kreditreiknings sem færður var Baugi hf. til tekna í bókhaldi félagsins.

    Skýring:
    Bókhald Baugs Group hf. hefur verið endurskoðað af KPMG frá stofnun félagsins. Ársreikningar félagsins hafa verið undirritaðir athugasemdalaust allt frá upphafi. Efnahagsreikningur félagsins hefur alla tíð endurspeglað rétta og raunverulega stöðu félagsins. Þegar gert var yfirtökutilboð í hlutabréf Baugs Group og félagið skráð af markaði hér á landi, gerðu hvorki kaupendur né seljendur hlutabréfanna athugasemdir við yfirtökutilboðið þess efnis að efnahagur félagsins væri annar en hann var sýndur í bókhaldi þess. Áhugavert er að velta því fyrir sér hverjir hafi verið endanlegir þolendur þess ef verðmat hlutafjár Baugs var of hátt vegna þess að reikningarnir hafi gefið of bjarta mynd af stöðu félagsins.

    IV.
    Forstjórinn og aðstoðarforstjórinn eru ákærðir fyrir meiri háttar bókhaldsbrot með því að láta líta svo út í bókhaldi Baugs hf. að seld hefðu verið út úr félaginu hlutabréf félagsins sem í raun voru flutt á fjárvörslureikning í eigu Baugs hf. í Luxembourg en reikningurinn var nýttur meðal annars til að efna kaupréttarsamninga við æðstu stjórnendur Baugs hf.

    Skýring:
    Skattrannsóknarstjóri hefur farið yfir þessi viðskipti og komist að þeirri niðurstöðu að um hafi verið að ræða sölu á eigin hlutabréfum félagsins. Hér er því aðeins um að ræða viðskipti með eigin bréf milli stofnenda félagsins, svo sem Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og Kaupþings annars vegar, - og stjórnenda þess hins vegar.

    V.
    Forstjórinn og aðstoðarforstjórinn eru ákærðir fyrir fjárdrátt með því að hafa dregið fé úr sjóðum Baugs hf. til hagsbóta fyrir fjölskyldufyrirtæki forstjórans til fjármögnunar á eignarhlut og rekstri skemmtibáts í Bandaríkjunum.

    Aðstoðarforstjóranum er jafnframt gefið að sök fjárdráttur með því að draga sér fé úr sjóðum Baugs hf. til greiðslu á persónulegum útgjöldum hans sjálfs.

    Á þeim tíma sem framangreind brot sem ákærðu eru gefin að sök voru framin var Baugur hf. almenningshlutafélag með dreifða eignaraðild.

    Skýring:
    Á það hefur verið ítrekað bent að greiðslur til Nordica Inc. voru vegna reksturs og uppbyggingar á Nordica Inc. í Bandaríkjunum. Engir reikningar voru greiddir til Jóns Geralds Sullenbergers vegna reksturs á skemmtibát í Florida. Jón Gerald Sullenberger fékk lán frá Gaumi til kaupa á bátnum og var einnig eigandi bátsins og seljandi þegar hann sjálfur skráði bátinn til sölu í júní árið 2002. Saksóknari hefur ekki viljað kynna sér gögn málsins hvað þennan þátt varðar og hefur því brugðist rannsóknarskyldu sinni sem honum ber lagaleg skylda til að sinna.

    Á það skal bent að málið verður að öðru leyti ekki rekið í fjölmiðlum hér eftir.

    Jón Ásgeir Jóhannesson
    forstjóri Baugs Group hf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert