Frávísun í Baugsmáli kærð til Hæstaréttar

Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari.
Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari. mb.is/Júlíus

Sigurður Tómas Magnússon settur saksóknari í Baugsmálinu hefur kært frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur á fyrsta liðar af nítján til Hæstaréttar. Segir Sigurður Tómas að ómögulegt sé að segja til um hvenær niðurstaða Hæstaréttar liggi fyrir. Auk þess hefur Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, kært til Hæstaréttar að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi hafnað frávísun málsins í heild. Jafnframt hefur Brynjar Níelsson, verjandi Jóns Geralds Sullenbergers, kært til Hæstaréttar þá ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur að hafna frávísun málsins í heild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert