Rændu bjórkúti en báðust afsökunar á framferðinu

Fjórir ungir piltar, þrír 17 ára og einn 15 ára, reyndu að komast undan með bjórkút sem þeir tóku ófrjálsri hendi af krá í gærkvöld. Lögreglan stöðvaði för þeirra örfáum mínútum eftir að hún fékk tilkynningu um þjófnaðinn. Bjórkúturinn fannst svo við leit í bíl piltanna. Þeir voru fullir iðrunar og óskuðu eftir því að fara aftur á krána til að biðjast afsökunar á framferðinu. Það var svo gert um leið og bjórkútnum var skilað aftur í réttar hendur. Ekki liggur fyrir hvort frekari eftirmál verða vegna þessa.

Þjófurinn, sem stal mynddiskum í verslunarmiðstöð í gær, sýndi ekki alveg jafn mikla iðrun, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Hann viðurkenndi þó brot sitt þegar á hann var gengið. Viðkomandi er hálffimmtugur karlmaður sem hefur alloft áður komið við sögu lögreglunnar.

Þá var kortaveski stolið frá erlendum ferðamanni sem sat að snæðingi á veitingahúsi í miðbænum. Gesturinn hafði skilið veskið eftir í úlpu í fatahengi en það var horfið þegar kom að því að borga reikninginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert