Álagning lögaðila 73,9 milljarðar króna

Tölur um álagningu lögaðila árið 2006 fyrir tekjuárið 2005 liggja nú fyrir. Um er að ræða tekjuskatt, tryggingagjald, fjármagnstekjuskatt, búnaðargjald, jöfnunargjald alþjónustu og iðnaðarmálagjald. Álagningin nemur samtals 73,9 milljörðum króna. Álagður tekjuskattur lögaðila á tekjuárinu 2005 nemur 34,7 milljörðum. Hann hefur hækkað frá fyrra ári um nær 11 milljarða eða 46%. Fjöldi gjaldenda tekjuskatts er nær 15.000 og hefur þeim fjölgað frá fyrra ári um 11%.

Tekjuskattur lögaðila hefur hækkað nær stöðugt frá því skatthlutfall var lækkað í 18% tekjuárið 2002.

Fjármagnstekjuskattur lögaðila nemur 6,2 milljörðum en þar er að mestu um að ræða greiðslu ríkissjóðs á fjármagnstekjuskatti aðallega vegna sölu Landssímans en hann nam 5,6 milljörðum króna. Einu lögaðilarnir sem greiða fjármagnstekjuskatt eru þeir sem eru undanskyldir greiðslu tekjuskatts.

Tryggingagjald nemur samtals 32,5 milljörðum króna og hefur hækkað um 17,7% frá fyrra ári. Tryggingagjald er innheimt í staðgreiðslu og er hér því um uppgjör að ræða. Álagningartölur fyrir tryggingagjald innifela markaðsgjald og iðgjald slysatryggingar sjómanna. Búnaðargjald, jöfnunargjald alþjónustu og iðnaðarmálagjald nema samtals um 100 milljónum króna.

Vefur Ríkisskattstjóra

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara G. Tómas Gunnarsson: 46%
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert