Ferðum Herjólfs aflýst í dag

Ákveðið hefur verið að aflýsa öllum ferðum Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs í dag vegna veðurs en fyrirhugað var að Herjólfur sigldi tvær ferðir milli lands og Eyja. Mjög vont er í sjóinn. Á Stórhöfða var vindhraði 26 metrar á sekúndu klukkan eitt í dag og ölduhæð við Surtsey er rúmir átta metrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert