Aurskriða féll á hús í Eyjafjarðarsveit

mbl.is

Tilkynnt var um það klukkan 6:30 í morgun, að aurskriða hefði komið úr fjallinu ofan við bæinn Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit. Skriðan lenti ekki á húsum. 20 mínútum seinna barst tilkynning um að önnur aurskriða hefði fallið á sama stað og nú lent á íbúðarhúsinu og útihúsum. Engin meiðsli urðu á fólki. Í þetta skiptið fór skriðan yfir veginn á allt að 100 metra kafla, að því er talið er.

Að sögn lögreglu komust ábúendur, hjón og 1 barn, á dráttarvél yfir skriðuna og í öruggt skjól á bænum Hrísum. Íbúar á bæjum sunnan við Grænuhlíð hafa verið aðvaraðir en skriðusérfræðingur telur þó ekki miklar líkur á skriðuföllum þar.

Ekki er vitað um afdrif nautgripa og fjár í húsum við Grænuhlíð en rafmagn fór a.m.k. af fjósinu. Ekki er vitað hversu mikið tjón hefur orðið á mannvirkjum.

Kl. 7:45 var tilkynnt um að aurskriða hefði fallið á veginn norðan við Kolgrímustaði í Eyjafjarðarsveit. Skriðan lokar veginum en lenti ekki á öðrum mannvirkjum. Þá er vitað að aurskriða féll á veginn norðan við bæinn Stóradal og er vegurinn ófær.

Lögregla hefur lokað þjóðveginum til suðurs við Saurbæ í Eyjafjarðarsveit. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er Hörgárbraut einnig ófær við bæinn Skriðu vegna skriðufalla og á Eyjafjarðarbraut vestri er skriða í námunda við Skáldstaði. Í birtingu verða aðstæður kannaðar á vettvangi þessara skriðufalla með skriðusérfræðingi og þá tekin ákvörðun um frekari aðgerðir og opnun vega.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert