Áttaviti sýndi rétta stefnu þegar Wilson Muuga strandaði

Wilson Muuga á strandstað og þyrla Landhelgisgæslunnar á sveimi yfir.
Wilson Muuga á strandstað og þyrla Landhelgisgæslunnar á sveimi yfir. mbl.is/ÞÖK
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is
Í sjóprófum vegna strands Wilson Muuga sem fram fóru í gær kom fram að það var ekki aðeins sjálfstýring skipsins sem bilaði heldur einnig svonefndur gírókompás, sem gaf til kynna að stefnan var nánast í hásuður eins og til var ætlast, jafnvel þótt skipið hefði hrakist af leið vegna hliðarvinds á stjórnborða. Vegna þessa stefndi skipið á miklu vélarafli og á allt að 13,4 sjómílna hraða til lands án þess að áhöfnina grunaði að stefnan væri röng fyrr en alltof seint.

Fram kom að gírókompásinn var bilaður fyrr í þessum mánuði og fór fram viðgerð 6. desember. Yfirstýrimaðurinn, sem var við stjórnvölinn þegar skipið strandaði, vissi ekki af viðgerðinni en sagði við sjóprófin að vitaskuld hefði hann sýnt meiri árvekni hefði hann vitað af biluninni. Um samskiptin við danska varðskipið Triton sagði Valeri Semjakov skipstjóri að áhöfnin hefði að beiðni Tritons gert klárt fyrir uppgöngu varðskipsliða sem sendir voru á gúmbát. Áhöfnin hefði sagt Triton-mönnum að illmögulegt væri að komast um borð í síversnandi öldugangi. Hann hefði ekki verið látinn vita af því að bátur hefði verið sendur af stað frá varðskipinu.

„Við gátum einvörðungu skoðað það sem var í kringum okkur. Eftir 20–30 mínútur sáum við gúmbát á bakstafni en óljóst var með fjölda bátsmanna. Hvort þeir voru sex eða sjö vissi ég ekki en báturinn var í ákveðinni fjarlægð frá skipinu, fór fram fyrir það og sneri síðan við. Við fylgdumst með en vorum ekki í sambandi við mennina og síðan hvarf báturinn út í myrkrið."

Í hnotskurn
» Ekki aðeins sjálfstýringin í Wilson Muuga var biluð heldur einnig svonefndur gírókompás og gaf hann til kynna að skipið stefndi í hásuður eins og til var ætlast.
» Kompásinn var bilaður fyrr í þessum mánuði og fór fram viðgerð í Englandi 6. desember sl.

Nánar er fjallað um sjóprófin í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert