Útgáfufélag í eigu Baugs og 365 tekur við útgáfu DV

Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. hefur í dag keypt útgáfu DV samkvæmt kaupsamningi við 365 miðla hf. Hefur Sigurjón M. Egilsson, sem síðast var ritstjóri Blasins, verið ráðinn ritstjóri DV. Nýja útgáfufélagið er í eigu Hjálms ehf., sem er að öllu leyti í eigu Baugs Group, 365 miðla, Sigurjóns og Janusar Sigurjónssonar.

Fram kemur í tilkynningu að fyrst um sinn mun DV koma út í óbreyttri mynd, þ.e. um helgar, en útgáfudögum verði fjölgað á næsta ári. Engum starfsmönnum verður sagt upp hjá DV vegna eigendaskiptanna.

Hjálmur ehf. á 49% í nýja útgáfufélaginu, 365 miðlar eiga 40% og þeir Janus og Sigurjón afganginn að því er kemur fram í tilkynningunni.

Stjórnarformaður útgáfufélagsins er Hreinn Loftsson, en hann er einnig stjórnarformaður Hjálms ehf. Með honum í stjórn eru Auðbjörg Friðgeirsdóttir og Sverrir Arngrímsson. Framkvæmdastjóri félagsins verður Hjálmar Blöndal.

Hjálmur er aðaleigandi félagsins Fögrudyra ehf. sem gefur úr tímaritið Ísafold. Fögrudyr hafa einnig keypt tímaritin Hér & nú og Veggfóður og hlut í tímaritinu í Bístró.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert