Móttaka fyrir þá sem tæmdu olíuna úr Wilson Muuga

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra ræðir við þá Davíð Egilson, t.h., og …
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra ræðir við þá Davíð Egilson, t.h., og Gottskálk Friðgeirsson frá Umhverfisstofnun á strandstaðnum. mbl.is/ÞÖK

Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, hefur boðið öllum þeim sem komu að aðgerðum á staðnum þar sem flutningaskipið Wilson Muuga strandaði, til móttöku í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í Reykjavík í dag.

Áfimmtudag var lokið við að tæma olíu úr tönkum Wilson Muuga á strandstað við Hvalsnes á Reykjanesi. Þar með lauk bráðaaðgerðum til að forða mengunarslysi sem stóðu sleitulaust í nær 30 klukkustundir. Á þessum tíma tókst að dæla um 95 tonnum af olíu í land en 10-15 tonn af olíu eru eftir í lestarrými skipsins. Ekki er hins vegar talið, að dýralífi og náttúru í kringum strandstaðinn stafi hætta af olíunni.

Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu segir, að Jónína Bjartmarz hafi lýst yfir ánægju sinni með það hversu vel gekk að koma í veg fyrir umhverfisslys á strandstað. Kunni hún starfsfólki Umhverfisstofnunar, Olíudreifingar, þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar, Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, Framtaks, sýslumannsins í Keflavík og björgunarsveitarfólki Landsbjargar bestu þakkir fyrir vel unnin störf. Af þessu tilefni hefur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert