Síminn og Landsvirkjun viðurkenna brot á samkeppnislögum

Í kjölfar rannsóknar Samkeppniseftirlitsins hafa Síminn hf., Landsvirkjun og Fjarski ehf., dótturfélag Landsvirkjunar, gert sátt við Samkeppniseftirlitið og fallist á að hafa haft með sér ólögmætt samráð í tengslum við kaup Símans á eignarhlut í Fjarska, og við kaup Símans á sex ljósleiðarastrengjum á milli Hrauneyjarfossstöðvar og Akureyrar. Síminn féllst á að greiða 55 milljónir í stjórnvaldssekt og Landsvirkjun 25 milljónir en litið var til þess að Síminn var leiðandi aðili í samráðinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Samkeppniseftirlitinu er forsaga málsins sú, að í febrúar 2005 keypti Síminn fjórðungshlut í Fjarska sem starfar m.a. á fjarskiptamarkaði ásamt því að kaupa af Fjarska sex ljósleiðarastrengi af 12 á milli Hrauneyjafossstöðvar og Akureyrar. Eftir að greint var frá þessu samstarfi í fréttum hófu samkeppnisyfirvöld að eigin frumkvæði rannsókn, sem leiddi til þess að aðilum var sent andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins. Þar kom fram það frummat eftirlitsins að markmiðið með samningum félaganna hafi verið að raska samkeppni og skipta með sér markaði á sviði fjarskipta og með því hafi aðilar farið gegn 10. gr. samkeppnislaga.

Í kjölfar þess að andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins var birt leituðu aðilar hvor fyrir sig eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið sem leiddi til þessarar niðurstöðu. Í sáttinni felst að aðilar málsins viðurkenna að hafa farið gegn 10. gr. samkeppnislaga og fallast á að ógilda þá samninga sem voru grundvöllur brota. Þá fellst Síminn á að greiða 55 milljónir í stjórnvaldssekt og Landsvirkjun 25 milljónir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert