Ísland og Bandaríkin ræddu um loftvarnakerfið

Ratsjárstöðin á Gunnólfsvíkurfjalli á Langasnesi.
Ratsjárstöðin á Gunnólfsvíkurfjalli á Langasnesi. mbl.is/Ásdís

Fyrsti fundur Íslands og Bandaríkjanna um framtíð ratsjár- og loftvarnarkerfisins á Íslandi var haldinn í Brussel fyrr í dag. Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, að á fundinum hafi verið rætt fyrirkomulag og fjármögnun á kerfinu líkt og kveðið sé á um í samkomulagi Íslands og Bandaríkjanna, sem undirritað var í október á síðasta ári.

Þá segir ráðuneytið, að fundurinn hafi verið jákvæður og séu fljótlega fyrirhugaðar áframhaldandi viðræður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert