Rætt um samstarf um öryggismál við Dani

Keflavíkurflugvöllur og herstöðin þar.
Keflavíkurflugvöllur og herstöðin þar. mbl.is/Árni Sæberg

Íslenskir og danskir embættismenn áttu í dag öðru sinni fund um samstarf þjóðanna um öryggismál. Fundurinn var haldinn í Reykjavík og var áfram fjallað um mögulegar leiðir til að auka samstarf á sviði öryggismála og ákveðið að hefja vinnu við nánari útfærslu þess.

Ennfremur var öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli heimsótt og aðstæður þar skoðaðar, að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert