Bakkað yfir tré á Skólavörðustíg

mbl.is/Jóhann Bjarni Kolbeinsson.

Ung stúlka varð fyrir því óláni um klukkan 17 í dag að bakka yfir tré neðarlega við Skólavörðustíg. Stúlkan var ásamt vinkonu sinni í bílnum og sakaði þær ekki.

Ekki er vitað hvernig atvikið bar að. Stúlkurnar létu sig fljótt hverfa enda bar mikinn fjölda fólks að og höfðu margir á orði að það væri með ólíkindum hvernig stúlkunni tókst að bakka upp á tréð sem er umvafið járngrind.

Bifreiðin var fjarlægð um klukkustund síðar, lítið skemmd. Þótt ótrúlegt megi virðast brotnaði tréð ekki undan þunganum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert