Páll Magnússon útvarpsstjóri og framkvæmdastjóri Ríkisútvarpsins ohf.

Páll Magnússon.
Páll Magnússon. mbl.is

Páll Magnússon var í dag ráðinn í starf útvarpsstjóra og framkvæmdastjóra Ríkisútvarpsins ohf. og hefur hann þegar tekið til starfa. Menntamálaráðuneytið hefur frá sama tíma veitt Páli lausn frá embætti útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins.

Í hans stað hefur Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sjónvarps, verið tímabundið settur í embætti útvarpsstjóra eða þar til hið nýstofnaða félag tekur við starfseminni þann 1. apríl nk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert