Kaupmáttur jókst um 56% á áratug

Heildartekjur heimilageirans eru taldar hafa aukist um 183% árin 1994 til 2005, að því er kemur fram í nýju riti frá Hagstofunni. Heildareigna- og tilfærsluútgjöld hafa aukist heldur meira eða um 256%. Ráðstöfunartekjur heimilanna í heild eru taldar hafa aukist um 149%, eða að meðaltali um 9% á ári.

Að teknu tilliti til verðlagsbreytinga og aukningu mannfjölda jókst kaupmáttur á mann um 56% frá árinu 1994 til 2005 og hækkuðu ráðstöfunartekjur á mann að meðaltali um 4,2% á ári.

Rit Hagstofunnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert