Ráðuneytið segir ekkert athugavert við afgreiðslu umsóknar um ríkisfang

Dómsmálaráðuneytið segir, að fullyrðingar um að afgreiðsla á umsókn um ríkisborgararétt ungrar stúlku frá Gvatemala hafi verið á annan veg en almennt gerist, séu ekki réttar miðað við starfsvenjur ráðuneytisins, þegar umsókn sé lögð fyrir Alþingi.

Ráðuneytið segir í tilkynningu, að aðalreglan sé, að Alþingi veiti íslenskan ríkisborgararétt með lögum. Þegar umsækjandi óskar eftir, að umsókn fari fyrir Alþingi, fer hún um hendur dóms- og kirkjumálaráðuneytis, sem leitar umsagnar lögreglu og útlendingastofnunar. Ráðuneytið óskar eftir afgreiðslu þessara stofnana innan þeirra tímamarka, sem afgreiðsla alþingis setur.

„Í því tilviki, sem hér um ræðir hefur verið gefið til kynna, að afgreiðslan hafi verið á annan veg en almennt gerist. Fullyrðingar um það efni eru ekki réttar miðað við starfsvenjur ráðuneytisins, þegar umsókn er lögð fyrir alþingi. Upplýsingar frá lögreglu og útlendingastofnun eru þess eðlis, að almennt er unnt að veita þær samdægurs, ef svo ber undir.

Tímafrestir, sem getið er um á vefsíðu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, gilda, þegar ráðuneytið sjálft veitir ríkisborgararétt, en ekki þegar umsókn er lögð fyrir alþingi," segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert