Vélhjólamenn í Fjarðabyggð vilja braut fyrir torfæruhjól

Vélhjólamenn fjölmenntu að bæjarskrifstofununum í dag.
Vélhjólamenn fjölmenntu að bæjarskrifstofununum í dag. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Vélhjólamenn afhentu bæjarstjórn Fjarðabyggðar í dag áskorun um að hefja nú þegar vinnu við uppbyggingu brautar fyrir torfæruhjól í Norðfirði. Eigendur vélhjóla og fjórhjóla fjölmenntu að bæjarstjórnarskrifstofunum í Neskaupstað og gáfu hjólunum inn til að undirstrika kröfur sínar.

Í áskorun, sem afhent var, kemur fram að um 30 torfæruhjól séu nú í Neskaupstað og en aðstaða sé engin þar sem að hjólin séu ólögleg á þjóðvegum og akstur utan vega á Íslandi sé bannaður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert