Frábær sýning San Francisco-ballettsins

Helgi Tómasson, listrænn stjórnandi San Francisco ballettsins, leiðbeinir ungum nemendum …
Helgi Tómasson, listrænn stjórnandi San Francisco ballettsins, leiðbeinir ungum nemendum í Listdansskólanum. Ásdís Ásgeirsdóttir

Sýning San Francisco-ballettsins á verkum Helga Tómassonar, listræns stjórnanda flokksins, stóð fyllilega undir væntingum að mati Margrétar J. Gísladóttur, dansgagnrýnanda Morgunblaðsins.

"Í heildina hafa dansverk Helga hreinan dansstíl og fágaðar hreyfingar. Hann notar einfaldar hreyfingar á móti flóknum, hægt á móti hröðu, þannig að ávallt er um andstæður að ræða. Samvinna dansaranna í tvídönsum er unun á að horfa," segir Margrét m.a. í dómnum. Hún segir sýningu kvöldsins hafa sýnt afburðahæfa dansara, dansara sem hafa ástríðu fyrir því að dansa.

Enn eru eftir þrjár sýningar San Francisco-ballettsins hérlendis.

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert