Jafnrétti í 100 stærstu fyrirtækjum landsins ábótavant

Konur voru aðeins 8% stjórnarmanna stærstu fyrirtækja sem voru skráð …
Konur voru aðeins 8% stjórnarmanna stærstu fyrirtækja sem voru skráð í Kauphöll Íslands og þar af gegnir engin kona stjórnarformennsku Mynd/KI

Konur sitja aðeins í 8% stjórnarsæta í hundrað stærstu fyrirtækjum Íslands og aðeins um 14% æðstu stjórnenda þessa fyrirtækja eru konur. Færri konur eru í stjórnum stærstu fyrirtækjanna nú en fyrir 2 árum og þriðjungur fyrirtækjanna eru með skriflega jafnréttisáætlun. Þetta og fleira kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem Rannsóknarsetur vinnuréttar og jafnréttismála við Háskólann á Bifröst um jafnrétti í 100 stærstu fyrirtækjum landsins.

Við val á fyrirtækjum var miðað við ársveltu fyrirtækja samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Lánstrausti. Upplýsingaöflun fór fram á tímabilinu 23. apríl til 15.maí 2007.

Birting upplýsinga um jafnrétti í 100 stærstu fyrirtækjunum er liður í verkefninu Jafnréttiskennitalan, en samstarfsaðilar verkefnisins eru Viðskiptaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa.

Helstu niðurstöðurnar eru þær að konur skipa 8% stjórnarsætanna (32 af 408 stjórnarsætum) og hefur hlutfall kvenna minnkað um 4% frá árinu 2005 þegar hlutfall þeirra var 12%. 46 af 328 forstjórum og framkvæmdastjórum eru konur eða um 14% en hlutfall þeirra var 10% árið 2005.

Engin kona eru í stjórn 71% fyrirtækjanna og aðeins þriðjungur fyrirtækjanna eru með skriflega jafnréttisáætlun. Aðeins þrjú af 100 stærstu fyrirtækjum landsins skarta konu í stjórnarformennsku en árið 2005 voru þær fimm. 12 fyrirtæki eru með konur í þriðjung stjórnarsæta eða meira og eru það; Árdegi hf, Diskurinn ehf, Edda – útgáfa hf, Fasteignafélagið Stoðir hf, Fríhöfnin ehf, Hagar hf, Hraðfrystistöð Þórshafnar hf, Íslensk-ameríska verslunarfélagið ehf, Landsnet hf, Nýsir hf, Rúmfatalagerinn ehf og Þyrping hf.

Heimasíða Rannsóknarseturs í vinnurétti og jafnréttismálum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert