Birtir til í rækjuiðnaði á Ísafirði

Gunnbjörn ÍS, áður Framnes, landaði í dag rúmum 30 tonnum af úthafsrækju, eftir 6 sólahringa á veiðum. Aflinn fer í vinnslu hjá Miðfelli á Ísafirði. Þetta er þriðja rækjulöndun Gunnbjarnar eftir að skipið hóf rækjuveiðar á ný í byrjun mánaðarins. Ferskri rækju hafði þá ekki verið landað á Ísafirði frá því Framnesinu lagt fyrir einu og hálfu ári.

Jón Guðbjartsson, útgerðarmaður hjá Birni ehf. segir að um tilraun sé að ræða, það muni koma í ljós hvort áframhald verði á veiðunum, aflabrögð og afurðaverð ráði því. Ekki hefur verið bjart yfir rækjuútgerð og -iðnaði í mörg ár. Verð lágt og aflabrögð léleg. Það var ástæðan fyrir því að Hraðfrystihúsið – Gunnvör sá sig knúið til að hættu veiðum og vinnslu á rækju.

Skipstjóri í túrnum var Jón Steingrímsson og fékkst rækjan norður af Djúpinu og er þetta ágæt rækja. Tvö önnur skip frá Ísafirði eru á rækjuveiðum, Óli Hall HU og Strákur SK. Þau eru á veiðum vestur af landinu og landa á Snæfellsnesi og er aflanum keyrt til Ísafjarðar til vinnslu hjá Miðfelli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert