Þurfa að bæta tjón vegna hests sem slapp úr girðingu

Hæstiréttur hefur dæmt eigendur bújarðar til að greiða að 2/3 hlutum tjón, sem ökumaður vélhjóls varð fyrir þegar tveir hestar stukku yfir rafmagnsgirðingar í beitarhólfi og fóru síðan út um opið hlið út á þjóðveg. Vélhjólamaðurinn truflaðist við aksturinn og missti stjórn á hjólinu sem skemmdist.

Héraðsdómur hafði áður sýknað landeigendurna á þeirri forsendu, að rafmagnsgirðingarnar, sem hestarnir stukku yfir, hafi ekki verið vanbúnar. Hæstiréttur vísar hins vegar til opna hliðsins og kemst að þeirri niðurstöðu, að vegna þess séu landeigendurnir bótaskyldir.

Ökumaðurinn var hins vegar látinn bera 1/3 af tjóninu sjálfur þar sem hann hefði séð hestinn nálgast þjóðveginn með nokkrum fyrirvara og því borið að gæta að sér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert