Ekki talin ástæða til að hækka viðbúnaðarstig hér

Greiningardeild ríkislögreglustjóra segir að ekki þyki ástæða til að hækka vástig hér á landi vegna atburða í Bretlandi þar sem sprengjur fundust í bílum í London og atburðum á Glasgow flugvelli. Embættið mun þó fylgjast áfram með þróun mála.

Hjá ríkislögreglustjóra sé áfram fylgst með málinu og farið hafi verið yfir hvort ástæða væri til að grípa til hertra öryggisaðgerða hérlendis. Á þessu stigi sé ekki talin sérstök ástæða til slíks og engar upplýsingar fyrirliggjandi, sem gefi ástæðu til þess.

Hins vegar hafi slíkir atburðir í nágrannalandi þau áhrif, að mælst sé til þess að hérlendir öryggisaðilar sýni aukna árverkni í starfi svo sem á alþjóðaflugvöllum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert