Bráðabirgðalög um notkun raflagna á varnarsvæðinu

Fyrrum varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli.
Fyrrum varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli.

Forseti Íslands hefur í dag undirritað lög sem afgreidd voru á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun þess efnis að heimilt sé að nota raflagnir og rafföng í núverandi ástandi á íbúðar- og skólasvæði fyrrum varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli til 1. október 2010.

Í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu segir, að raflagnir og rafföng séu í samræmi við bandaríska staðla og uppfylli því ekki þær kröfur, sem gerðar séu í íslenskum lögum og reglugerðum. Því sé ljóst að skipta verði um raflagnir innan svæðisins. Það sé viðamikið verkefni og muni hafa mikinn kostnað í för með sér.

Skólastarf hefst á svæðinu haustið 2007 og til stendur að afhenda fyrstu íbúðir þar um miðjan ágúst. Ómögulegt er talið að koma raflögnum í rétt ástand fyrir þann tíma, auk þess sem erfitt er að fá iðnaðarmenn til starfsins.

Samkvæmt lögunum er Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar ehf. gert skylt að leggja fram verkáætlun til Neytendastofu fyrir 1. október 2007 um hvernig staðið verði að breytingum til samræmis við íslenskar kröfur fyrir 1. október 2010.

Þá er jafnframt ákvæði um það í lögunum að Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. skuli tilnefna umsjónarmann öryggismála á svæðinu sem starfi í samvinnu við Neytendastofu og að hann uppfylli hæfniskröfur sem gerðar eru í reglugerð um raforkuvirki, með síðari breytingum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert