Bæjarráð Bolungarvíkur virðir ákvörðun sjávarútvegsráðherra

Bæjarráð Bolungarvíkur samþykkti í morgun bókun þar sem fram kemur að bæjarráðið virðir ákvörðun Einars Kristins Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra um niðurskurð á aflaheimildum þar sem hún er byggð á niðurstöðum sérfræðinga um nýtingu fiskistofnanna.

„Nú liggur fyrir niðurstaða sjávarútvegsráðherra um veiðiheimildir fyrir næsta fiskveiðiár og verður niðurskurður í Bolungarvík rétt eins og annarsstaðar. Þetta þýðir mikið tekjutap bæði fyrir kaupstaðinn og samfélagið allt og má ætla að tekjutap í Bolungarvík vegna skerðingarinnar nemi nokkrum hundruðum milljónum króna. Þá eru ótalin önnur ruðningsáhrif af sjávarútvegsrekstri í Bolungarvík.

Bæjarráð Bolungarvíkur virðir ákvörðun Einars Kristins Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra þar sem hún er byggð á niðurstöðum sérfræðinga um nýtingu fiskistofnanna. Mikilvægt er að þær mótvægisaðgerðir sem kynntar hafa verið af hálfu ríkisstjórnarinnar séu raunhæfar, gagnist þeim byggðarlögum sem hvað harðast koma út úr skerðingunni og að þeim verði hrint í framkvæmd hið fyrsta.

Það er ljóst að í Bolungarvík, líkt og í öðrum samfélögum þar sem fiskveiðar eru lykilatvinnuvegurinn, að skerðing veiða mun hafa mikil áhrif á atvinnulíf og afkomu margra. Hitt er þó jafn mikilvægt að standa saman um að styrkja aðra þætti atvinnulífsins og að gott samstarf verði milli ríkisvalds, sveitarstjórna, fyrirtækja og rekstraraðila á einstökum svæðum. Aðeins þannig verður hægt að mæta þeim þrengingum sem framundan eru og skapa ný tækifæri í öðrum greinum.

Bæjarráð hvetur frumkvöðla til að kynna hugmyndir sínar bæjaryfirvöldu sem munu leggja sig fram um að aðstoða þá sem kunna að sjá ný tækifæri í stöðunni við að vinna frekar úr þeim. Bæjarráð lýsir yfir fullum vilja til að vinna í nánu samstarfi við stjórnvöld um frekari úrvinnslu einstakra hugmynda.

Nánar um bókun bæjarráðs Bolungarvíkur

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert