Aðgerðasinnar hengdu borða á Ráðhús Reykjavíkur

Liðsmenn Saving Iceland hengdu borða með áltetruninni „Vopnaveita Reykjavíkur?“ á …
Liðsmenn Saving Iceland hengdu borða með áltetruninni „Vopnaveita Reykjavíkur?“ á ráðhúsið í dag. mbl.is/Júlíus

Aðgerðasinnar úr röðum Saving Iceland létu til skarar skríða í miðborg Reykjavíkur í dag er þeir klifruðu upp á Ráðhús Reykjavíkur og hengdu þar upp borða með áletruninni „Vopnaveita Reykjavíkur?“.

Fram kemur í tilkynningu frá samtökunum að þau hafi einnig dreift tímariti Saving Iceland auk upplýsinga um mannréttindabrot stóriðjufyrirtækja, brask þeirra í vopnaiðnaðinum og ábyrgð á gróðurhúsalofttegundum.

Að sögn lögreglu er um fámennan hóp að ræða. Mótmælin hafa farið friðsamlega fram og hefur lögreglan ekki þurft að hafa afskipti af fólkinu.

mbl.is/Júlíus
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert