Aðgerðarsinnar mótmæla við álverið í Straumsvík

Mótmælendur frá Saving Iceland við Straumsvík
Mótmælendur frá Saving Iceland við Straumsvík mbl.is/Júlíus

Aðgerðarsinnar úr röðum Saving Iceland hafa lokað fyrir umferð að veginum sem liggur upp að álverinu í Straumsvík. Fram kemur í tilkynningu frá samtökunum að um 20 mótmælendur hafi læst sig saman og klifrað upp í krana á vinnusvæðinu.

Saving Iceland segist vera með þessu að mótmæla fyrirhuguðu álveri Rio Tinto-ALCAN á Keilisnesi eða Þorlákshöfn, stækkun álversins í Hafnarfirði og nýju álveri í Suður-Afríku sem verður keyrt áfram af kolum og kjarnorku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert