Háskólanemar fá íbúðir sínar á varnarsvæðinu afhentar í dag

Íbúðir á varnarsvæðinu
Íbúðir á varnarsvæðinu

Frá og með kl. 9 í morgun gátu nýir íbúar á háskólasvæði Keilis fengið íbúðir sínar afhentar. Þegar hafa verið leigðar út um 300 íbúðir en 30 nýjum íbúðum hefur verið bætt við þann fjölda síðustu daga og verðum þeim úthlutað á næstunni.

Í fréttatilkynningu kemur fram að Keilir og Reykjanesbær vinna að þessari uppbyggingu háskólasamfélags á gamla varnarsvæðinu í samstarfi við Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar en  um 700 íbúar er að flytja þangað í dag og næstu daga. 

Í síðustu viku var samið við Hjallastefnuna um rekstur leik- og grunnskóla á svæðinu en auk þess verður einnig starfrækt þar íþróttamiðstöð á svæðinu, verslun, veitingastaður og kaffihús. Nettengngar og strætóferðir til Reykjavíkur eru innifaldar í leiguverði.

Frá varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Frá varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert