Þýsku ferðamennirnir taldir af og leit hætt

Frá blaðamannafundi í stjórnstöðinni í morgun.
Frá blaðamannafundi í stjórnstöðinni í morgun. mbl.is/ÞÖK

Þýsku ferðamennirnir tveir sem leitað hefur verið á Vatnajökli undanfarna sólarhringa eru taldir af, og leit að þeim hefur verið hætt, að því er fram kom á fréttamannafundi Landsbjargar nú fyrir hádegi. Talsmenn Landsbjargar segja leitarfólk hafa unnið mikið afrek við erfiðar aðstæður, en ekki sé talið forsvaranlegt að halda leitinni lengur áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert