Bílnúmer framtíðarinnar komin

Ný skráningarnúmer eru nú farin að sjást á ökutækjum landsins, gömlu fastanúmerin sem saman standa af tveimur bókstöfum og þremur tölustöfum eru uppurin og verða smám saman að einkennismerkjum gamalla skrjóða, en síðan fornlegra glæsivagna.

Í staðinn koma bílnúmer með tveimur bókstöfum, bili og svo einum bókstaf og tveimur tölustöfum, svipuð þeim gömlu, en engu að síður bílnúmer framtíðarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert