Bruggari handtekinn á Suðurlandi

Lögreglan á Hvolsvelli handtók í síðustu viku karlmann á þrítugsaldri fyrir landabrugg. Við húsleit á heimili hans fannst búnaður til bruggunar en einungis tveir lítrar af landa með um 40% vínandastyrkleika.

Húsleitin var gerð í kjölfar ábendingar sem lögreglu barst. Maðurinn á von á ákæru.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert