Á fjórða hundrað ökumanna ók of hratt

322 ökumenn eiga nú sekt yfir höfði sér fyrir að aka yfir ólöglegum hraða á Bústaðavegi í gær og fyrradag. Brot þeirra náðust á löggæslumyndavél en hinir brotlegu óku að jafnaði á liðlega 74 km hraða þar sem hámarkshraði er 60 km.

Að sögn lögreglunnar mældist fjörutíu og einn ökumaður á yfir 80 og tveir á yfir 90. Myndavélin var á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vestur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert