Unnið að endurskoðun á skattlagningu á ökutæki og eldsneyti

mbl.is

Endurskoðun á allri skattlagningu á ökutæki og eldsneyti stendur yfir hér á landi með það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka hlut vistvænna ökutækja. Sambærileg endurskoðun og breytingar á skattlagningu ökutækja og eldsneytis fer fram víðar. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins.

Þar segir að almennt sé hægt að rökstyðja skattlagningu á bíla og umferð með því að þeim sem þá eiga stendur til boða að nota vegakerfið og þá þjónustu sem þar er í boði án þess að greiða sérstakt gjald. Einnig veldur umferð ökutækja ýmsum kostnaði sem notandinn verður ekki var við nema endrum og sinnum. Umferð veldur mengun og hávaða, auk þess sem samfélagið tekur á sig ýmsan kostnað við slys og óhöpp sem verða á vegunum. Notkun jarðefnaeldsneytis er skattlögð í þeim tilgangi að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og til að auka sjálfbærni, samkvæmt vefriti fjármálaráðuneytisins.

Hér á landi er hluti skatta á eldsneyti notaður til að fjármagna uppbyggingu og viðhald vegakerfisins. Það er hins vegar ekki þekkt á Norðurlöndunum en algengt í Norður-Ameríku. Sums staðar er skattlagningu beitt til þess að hafa áhrif á umferðarálag. Eldsneyti er víða skattlagt töluvert mikið og í mörgum nágrannalandanna er skattur meira en helmingur af söluverði, samkvæmt vefriti fjármálaráðuneytisins. Rúmlega helmingur af söluverði eldsneytis á Íslandi rennur til ríkisins, samkvæmt töflu sem birtist í vefriti fjármálaráðuneytisins.

´Vefrit fjármálaráðuneytisins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert