Nafni Blaðsins breytt í 24 stundir

Nafni Blaðsins verður breytt í 24 stundir á morgun. Segir í tilkynningu frá Árvakri, að þetta sé hluti af sókn á dagblaðamarkaði sem hófst í sumar og verði nú fram haldið undir nýju nafni og með því að gera efni blaðsins enn aðgengilegra og skemmtilegra, ekki síst fyrir yngri lesendur.

Í tilkynningunni segir, að meðal þeirra breytinga sem lesendur verði varir við á næstunni, sé að helgarblað 24 stunda verði eflt til muna. 24 stundum verður dreift á heimili um allt land í 105 þúsund eintökum daglega.

„Nafnið 24 stundir undirstrikar ásetning Árvakurs hf. um að skapa blaðinu sérstöðu á markaðnum. Nafnið 24 stundir er fréttalegt og nútímalegt. Það vísar til þess að 24 stundir eru ætíð á vaktinni – allan sólarhringinn. Blaðið vaktar hagsmuni neytenda, notenda almannaþjónustu og skattgreiðenda og fylgist með menningar- og skemmtanalífinu. 24 stundir munu skera sig rækilega frá keppinautunum.

Um miðjan október hefst útgáfa á 64 síðna helgarblaði þar sem áhersla verður lögð á vandaða umfjöllun um innlend og erlend málefni, fróðleik og góða helgarafþreyingu. Þetta verður öflugt helgarblað, uppfullt af gagnlegum upplýsingum, skemmtilegum viðtölum, fréttum og skemmtiefni. Áhersla verður áfram á áhugaverð viðtöl, stór mál verða krufin til mergjar, myndaalbúm þekkta fólksins skoðuð, auk þess sem boðið verður upp á annað fjölbreytt efni fyrir alla aldurshópa.

24 stundir ætla sér að verða fyrirferðamiklar á blaðamarkaði og verða kynntar með blaðaauglýsingum, sjónvarps- og útvarpsauglýsingum, auglýsingum á strætisvögnum og á netinu. Um er að ræða einhverja umfangsmestu kynningu sem íslenskt blað hefur ráðist í," segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert