Karlar vinna tíu stundum meira en konur á viku

mbl.isSverrir

Meðalfjöldi vinnustunda á þriðja ársfjórðungi árið 2007 var 43,2 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 47,6 klst. hjá körlum en 37,4 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 47,1 klst., 49,5 klst. hjá körlum en 42,6 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í hlutastarfi voru 26,2 klst., 23,9 klst. hjá körlum en 26,9 klst. hjá konum. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Á þriðja ársfjórðungi 2006 var fjöldi vinnustunda 44,1 klst., 48,4 klst. hjá körlum en 38,2 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 47,8 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu 26,8 klst.

Tekið skal fram að um launaða vinnu er að ræða á vinnumarkaði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert