300 króna vaxtaauki af 100 þúsund krónum hjá SPRON

SPRON
SPRON

SPRON býður þessa dagana 15 % vaxtaauka á áunna vexti um áramótin. Hámarksávöxtun af 100.000 gæfi tæpar 300 krónur í vasa viðskiptavinarins.

Í kvöldfréttum RÚV kom fram að SPRON Viðbót ber 7.1 % vexti. Sá sem leggur 100.000 krónur inn á þennan reikning fengi 986 krónur í vexti á þessum 50 dögum. Ef hann tæki hins vegar tilboði SPRON um vaxtaaukann kæmi í hans hlut 15 % af þeirri upphæð og ágóðinn yrði alls 148 krónur. Venjulegur launamaður sem ekki á 100.000 krónur aflögu, en ákveður að taka tilboðinu og leggur 10.000 krónur inn á þennan reikning hagnast um tæpar 15 krónur.

Undanfarna daga hefur SPRON boðið þeim sem að vilja stofna sparnaðarreikningana bætt kjör. Ef stofnaður er reikningur á netinu fyrir 3. desember næstkomandi, er í boði 15 % vaxtaauki á áunna vexti um áramótin. Reikningarnir sem ræðir eru; SPRON Vaxtabót, SPRON Viðbót eða SPRON Veltubót. Um það bil 50 vaxtadagar eru eftir af árinu, samkvæmt frétt RÚV.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert