Krafa um verulegar kjarabætur í komandi samningum

Ögmundur Jónasson, formaður BSRB
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB mbl.is/Ásdís

Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sagði á aðalfundi bandalagsins í dag, þegar hann mælti fyrir ályktun fundarins, að menn yrðu að opna augu fyrir þeim alvarlega vanda sem blasti við innan almannaþjónustunnar. Víða væri orðið erfitt að manna störf og færi ástandið hríðversnandi.

„Ef ekkert verður að gert blasir við neyðarástand. Það er á ábyrgð viðsemjenda okkar að semja um stórbætt kjör í komandi kjarasamningum enda sýna kannanir að starfsmenn innan almannaþjónustunnar eru að dragast verulega aftur úr í launum. Ef starfsfólki innan almannaþjónustunnar verður ekki greitt kaup og búið að því eins og best gerist á launamarkaði horfir þar hreinlega til landauðnar á mikilvægu sviðum velferðarþjónustunnar."

Í ályktun BSRB er sett fram krafa um verulegar kjarabætur auk þess sem lögð er áhersla á að taka verði mið af þörfum fjölskyldunnar þegar samið er um kaup, vinnutíma og önnur kjör.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert