Hjálparkall vegna hryllingsmyndar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að húsi í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi en tilkynnandi óttaðist mjög um nágranna sína og taldi að eitthvað mikið gengi á í íbúð þeirra. Brugðist var skjótt við en þegar bankað var hjá fólkinu, sem óttast var um, kom kona á þrítugsaldri til dyra og furðaði sig mjög á þessari heimsókn lögreglunnar. Konan reyndist einsömul heima og ekki var að sjá að neinn hefði lagt á hana hendur.

Við frekari eftirgrennslan kom hins vegar í ljós að konan hafði verið að horfa á hryllingsmynd og sleppt sér gjörsamlega yfir myndinni sem var víst ansi magnþrungin, að sögn lögreglu. Eftir þessar upplýsingar kvöddu lögreglumennirnir konuna, sem lofaði að reyna að hemja sig.

 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert