Freyja er kona ársins hjá Nýju lífi

Freyja Haraldsdóttir.
Freyja Haraldsdóttir.

Tímaritið Nýtt líf hefur valið Freyju Haraldsdóttur konu ársins 2007 og var henni afhent viðurkenningin í hófi sem nú stendur yfir. Tímaritið heldur jafnframt upp á 30 ára afmæli sitt.

Nýtt líf segir í rökstuðningi fyrir valinu á konu ársins, að Freyja sé kona með ríka réttlætiskennd, sem hafi helgað líf sitt því að breyta viðhorfum til fólks með fötlun og stuðla að því að samfélagið geri ráð fyrir öllum. Fyrst og fremst sé hún þakklát fyrir lífið og ákveðin í að njóta þess til hins ýtrasta. 

Afmælisblað Nýs lífs kemur út á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert