Vilja mótmæla pólitískri spillingu við embættisveitingar

Ungir jafnaðarmenn segjast í ályktun mótmæla harðlega pólitískum skipunum Sjálfstæðisflokksins í embætti dómara á Íslandi. Segja þeir, að í þessum skipunum felist alvarleg valdníðsla og aðför að þeirri kröfu sem gerð sé í stjórnarskrá lýðveldisins um óháða og óhlutdræga dómstóla.

„Nú síðast hefur settur dómsmálaráðherra úr röðum Sjálfstæðisflokksins, sniðgengið álit sérfræðinganefndar sem metur hæfi umsækjenda um embætti héraðsdómara. Fyrir þessu eru ekki fordæmi. Svo vill til að sá sem stöðuna fékk var til langs tíma pólitískur aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og er sonur Davíðs Oddssonar fyrrum forsætisráðherra. Þrír umsækjendur höfðu verið metnir hæfari en hann. Eins og þingflokksformaður Samfylkingarinnar hefur réttilega bent á, skortir mjög á að rökstuðningur Árna Mathiesens, setts dómsmálaráðherra, sé trúverðugur varðandi þetta frávik," segir í ályktuninni.

Skora Ungir jafnaðarmenn síðan á sitt fólk að láta pólitíska spillingu við embættisveitingar ekki líðast í nýju ríkisstjórnarsamstarfi, frekar en áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert