Hálf milljón farþega með innanlandsflugi

Ein af flugvélum Flugfélags Íslands.
Ein af flugvélum Flugfélags Íslands. mbl.is/Eyþór

Í dag mun fjöldi farþega um íslenska áætlunarflugvelli í fyrsta skipti fara yfir 500 þúsund á ársgrundvell. Er það um 17% aukning á milli ára en á síðasta ári fóru 426.785 farþegar með innanlandsflugi.

Samkvæmt upplýsingum frá Flugstoðum hefur fjölgun farþega einkum orðið  á Reykjavíkurflugvelli, á Ísafirði, Akureyri og á Egilsstöðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert