Beðið ákvörðunar ráðherra

Anna Sigurlaug Pálsdóttir átti í gær fund með Degi B. …
Anna Sigurlaug Pálsdóttir átti í gær fund með Degi B. Eggertssyni borgarstjóra

„Ég átti mjög góðan og ánægjulegan fund með borgarstjóra í hádeginu,“ segir Anna Sigurlaug Pálsdóttir mannfræðingur, sem eins og fram hefur komið hefur boðið fram aðstoð sína í sambandi við endurbyggingu húsanna við Laugaveg 4 og 6. „Það gladdi mig mjög mikið að heyra að það er mikil jákvæðni fyrir því að vernda þessi sögulegu hús í bænum.“

Spurð hvort teknar hafi verið einhverjar ákvarðanir í framhaldi af fundinum svarar Anna því neitandi og bendir á að málið sé í ákveðinni biðstöðu þar til niðurstaða menntamálaráðherra liggur fyrir, en húsafriðunarnefnd ríkisins ákvað sem kunnugt er að beita skyndifriðun og óska eftir því við ráðherra að hún friðaði húsin.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert