Krafist lengra gæsluvarðhalds

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu krefst þess að fimm Litháar, sem réðust á fjóra fíkniefnalögreglumenn aðfaranótt laugardags, verði úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald, að því er kom fram í fréttum Útvarpsins.

Rannsókn málsins er í fullum gangi og hefur lögregla höfuðborgarsvæðisins leitað til lögreglunnar í Litháen eftir upplýsingum um mennina. Lögreglan gengur út frá því að árásarmennirnir hafi þekkt lögreglumennina í sjón en grunur leikur á að árásin hafi verið skipulögð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert