Allir með brotaferil í heimalandi sínu

Mennirnir fimm sem voru handteknir fyrir árás á götuhóp fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík í liðinni viku eru allir með brotaferil í heimalandi sínu, Litháen, samkvæmt upplýsingum frá alþjóðadeild ríkislögreglustjóra. Ekki fengust upplýsingar um hvers eðlis brotin eru.

Gæsluvarðhald sem mennirnir höfðu verið úrskurðaðir í rann út í gær en var framlengt til 18. janúar nk., að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í gær stóð til að senda rannsóknargögn til ríkissaksóknara enda taldi lögregla að hún gæti lokið rannsókninni. Það tókst hins vegar ekki og því var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert