Maður sem leitað var að er fundinn

Maður, sem byrjað var að svipast um eftir á sunnanverðum Vestfjörðum, er kominn í leitirnar. Maðurinn hugðist aka Kleifaheiði en skilaði sér ekki til byggða á til settum tíma.

Björgunarsveitir á Patreksfirði og Barðaströnd voru kallaðar út í morgun en fljótlega náðist samband við manninn og er hann nú komin á Barðaströnd með björgunarsveitarmönnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert