Íslensk hátíð kynnt í Brussel

Um 40 blaðamenn sóttu kynningarfund um íslensku hátíðina Iceland on the Edge sem hefst í Brussel í lok febrúar nk. og standa mun í fjóra mánuði.  Dagskrá hátíðarinnar er tvíþætt. Annars vegar er  íslensk menningardagskrá sem unnin hefur verið í samstarfi við Bozar, stærstu menningar- og listamiðstöð Belgíu og Ancienne Belgique, tónlistarhúsið í Brussel. Hins vegar verða íslenskir viðburðir undir formerkjum Iceland on the Edge, s.s. á sviði ferða- , ráðstefnu- orku og alþjóðamála.

Í Stiklum, vefriti utanríkisráðuneytisins kemur fram að brátt vera birtar sjónvarpsauglýsingar og sjónvarpsþættir um Ísland, veggspjaldaherferðir og auglýsingar. 

Á heimasíðu sendiráðs Íslands í Brussel  má finna dagskrá hátíðarinnar.

Ríkisstjórnin stendur að baki hátíðinni í samvinnu við Reykjavíkurborg, Ferðamálastofu og Útflutningsráðs. Portus, Icelandair og Icelandair Cargo eru samstarfsaðilar verkefnisins en Landsbankinn er máttarstólpi hennar. Hátíðin er unnin að frumkvæði og undir stjórn sendiráðsins í Brussel/utanríkisráðuneytisins en verkefnið hefur verið í undirbúningi undanfarin tvö ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert