Hagkaup styðja Föt sem framlag

Hagkaup og Kópavogsdeild Rauða krossins hafa gert með sér samning um að Hagkaup styrki verkefnið Föt sem framlag árlega í þrjú ár. Styrkur Hagkaupa nemur um helmingi af kostnaði Kópavogsdeildar við verkefnið.

Í tilkynningu segir að sjálfboðaliðar á öllum aldri sauma og prjóna fatnað fyrir verkefnið og útbúa ungbarnapakka sem sendir eru til neyðaraðstoðar víðs vegar um heim, mest til Malaví og Gambíu. Sjálfboðaliðar Kópavogsdeildar hafa frá árinu 2002 útbúið tæplega 3.000 ungbarnapakka en um 50 sjálfboðaliðar starfa við verkefnið. Síðasta miðvikudag hvers mánaðar kl. 16-18 mæta að jafnaði um 35 konur í sjálfboðamiðstöð deildarinnar til að vinna að verkefninu.

Pökkunum hefur verið dreift til barnaheimila fyrir HIV-smituð börn, til barnafjölskyldna sem heimsóknavinir malavíska Rauða krossins heimsækja í tengslum við alnæmisverkefni, til þurfandi mæðra, til fórnarlamba bruna og náttúruhamfara og til flóttamannafjölskyldna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert