Sigurður og Þorsteinn fá bókmenntaverðlaun

Ólafur Ragnar Grímsson tekur í hönd Sigurðar Pálssonar. Þorsteinn Þorsteinsson …
Ólafur Ragnar Grímsson tekur í hönd Sigurðar Pálssonar. Þorsteinn Þorsteinsson situr við hlið þeirra. Árni Sæberg

Þeir Sigurður Pálsson og Þorsteinn Þorsteinsson fengu í dag Íslensku bókmenntaverðlaunin, Sigurður í flokki fagurbókmennta fyrir Minnisbók og Þorsteinn í flokki fræðirita fyrir bókina Ljóðhús, þar sem fjallað er um Sigfús Daðason. Verðlaunin voru afhent á Bessastöðum nú síðdegis.

Bókmenntaverðlaunin nema 750 þúsund krónum í hvorum flokki, auk þess sem afhent eru skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripir hannaðir af Jóni Snorra Sigurðssyni á gullsmíðaverkstæði Jens. Um er að ræða opna bók á granítstöpli með nafni verðlaunahöfundar og bókar hans.

Þeir sem áður hafa hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin eru: Stefán Hörður Grímsson 1989, Fríða Á. Sigurðardóttir og Hörður Ágústsson 1990, Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson 1991, Þorsteinn frá Hamri og sameiginlega Vésteinn Ólason, Guðrún Nordal og Sverrir Tómasson 1992, Hannes Pétursson og Jón G. Friðjónsson 1993, Silja Aðalsteinsdóttir og Vigdís Grímsdóttir 1994, Steinunn Sigurðardóttir og Þór Whitehead 1995, Böðvar Guðmundsson og Þorsteinn Gylfason 1996, Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson 1997, Hörður Ágústsson og Thor Vilhjálmsson 1998, Andri Snær Magnason og Páll Valsson 1999, Gyrðir Elíasson og Guðmundur Páll Ólafsson 2000, Hallgrímur Helgason og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir 2001, Ingibjörg Haraldsdóttir, Pétur M. Jónasson og Páll Hersteinsson 2002, Ólafur Gunnarsson og Guðjón Friðriksson árið 2003, Auður Jónsdóttir og Halldór Guðmundsson árið 2004 og Jón Kalman Stefánsson og Kristín G. Guðnadóttir, Gylfi Gíslason, Arthur C. Danto, Matthías Jóhannessen, Silja Aðalsteinsdóttir og Eiríkur Þorláksson árið 2005, Ólafur Jóhann Ólafsson og Andri Snær Magnason árið 2006.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert