Í hópi verstu veðra í 12-13 ár

Það var víða bálhvasst á föstudagskvöldið
Það var víða bálhvasst á föstudagskvöldið Árvakur/RAX

Mat á illviðrinu síðastliðið föstudagskvöld  og aðfaranótt laugardags miðað við útbreiðslu þess og styrk virðist benda til þess að það, ásamt veðrum í desember og janúar, hafi verið í hópi verstu veðra sem yfir landið hafa gengið á síðustu 12 til 13 árum.  Þetta kemur fram í fróðleikspistli á vef Veðurstofu Íslands.

Einnig er óvenjulegt hversu tíð veðrin í vetur hafa verið ef miðað er við síðasta áratug. Sé litið til lengri tíma virðast ámóta illviðrasyrpur hins vegar hafa komið alloft áður.

Mesti vindhraðinn mældist í Skálafelli eða 67,2 metrar á sekúndu í vindhviðu og í Veiðivatnahrauni 66,1 metri á sekúndu.  

Nánari upplýsingar um vindhraða víða á landinu í illviðrinu 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert